73 - Breytingar á innra skipulagi, nýtt andyri, svalir og fleira
Fiskislóð 71-73
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 866
29. apríl, 2022
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. mars 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta iðnaðarhúsi í sýningarsvæði, skrifstofur og geymslur, stækka 2. hæð, gera vindfang, flóttastiga á suðvesturhlið, hringstiga á norðausturhlið og svalir á norðvesturhlið á húsi nr. 73 á lóð nr. 71-73 við Fiskislóð. Erindinu var vísað til umsagnar Faxaflóahafna og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Faxaflóahafna dags. 29. apríl 2022.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100007 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009836