breyting á deiliskipulagi
Skriðustekkur 1-7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 726
3. maí, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. mars 2019 var lögð fram umsókn Valdimars Nielsen dags. 14. mars 2019 ásamt bréfi Mannvirkjameistarans ehf. dags. 15. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts I vegna lóðarinnar nr. 1-7 við Skriðustekk. Í breytingunni felst að gerður verður nýr byggingarreitur fyrir viðbyggingu við suðurhlið húss nr. 5 við Skriðustekk. Auk þess verður byggingarreitur fyrir bílgeymslu stækkaður og færður til á lóðinni, samkvæmt uppdr. Mannvirkjameistarans ehf. dags. 10. apríl 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Skriðustekk 1, 3, 7, 9, 11, 13 og 15.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

109 Reykjavík
Landnúmer: 111839 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017721