breyting á deiliskipulagi
Skriðustekkur 1-7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 733
21. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu var lögð fram umsókn Valdimars Nielsen dags. 14. mars 2019 ásamt bréfi Mannvirkjameistarans ehf. dags. 15. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts I vegna lóðarinnar nr. 1-7 við Skriðustekk. Í breytingunni felst að gerður verður nýr byggingarreitur fyrir viðbyggingu við suðurhlið húss nr. 5 við Skriðustekk. Auk þess verður byggingarreitur fyrir bílgeymslu stækkaður og færður til á lóðinni, samkvæmt uppdr. Mannvirkjameistarans ehf. dags. 10. apríl 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. maí 2019 til og með 13. júní 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

109 Reykjavík
Landnúmer: 111839 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017721