Fjölbýlishús
Skipholt 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 769
17. apríl, 2020
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. apríl 2020 var lögð fram fyrirspurn Arkís arkitekta ehf. dags. 20. mars 2020 ásamt bréfi dags. 20. mars 2020 um að nýta hluta jarðhæðar hússins á lóð nr. 1 við Skipholt undir hótelherbergi. Um er að ræða alla jarðhæð hússins í nýrri hluta þess samtals 8 herbergi, þann hluta jarðhæðar er vísar að Stórholti, einungis garðmegin, samtals 2 herbergi ásamt því að verið er að ráðgera að lækka jarðveg utanfrá garðmegin og koma þar fyrir samtals 6 herbergjum. Einnig eru lagðir fram aðaluppdrættir dags. 13. september 2016 síðast br. 22. mars 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2020.
Svar

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2020.