Fjölbýlishús
Skipholt 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 850
17. desember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. október 2021 þar sem sótt er um leyfi til að hækka um eina hæð og innrétta 34 íbúðir, byggja svalir á götuhlið og svalagang á garðhlið, gera sameiginlegar þaksvalir og garð á baklóð húss á lóð nr. 1 við Skipholt. Erindi var grenndarkynnt frá 15. nóvember 2021 til og með 13. desember 2021. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 25. maí 2021, greinargerð Lotu vegna burðarvirkis ódagsett ásamt því að lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. september 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. september 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. september 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. september 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2021. Stækkun: xx ferm. Eftir stækkun: 3.501 ferm., 10.479,8 rúmm. B-rými: 375,5 ferm. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.