Fjölbýlishús
Skipholt 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 835
3. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. ágúst 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051113 þannig að innréttaðar verða 34 íbúðir í stað hótels, byggðar svalir á götuhlíð og svalagangur á garðhlið, ofanábygging að Stórholti er felld út og í staðinn gerðar sameiginlegar þaksvalir og garður á baklóð við hús á lóð nr. 1 við Skipholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. september 2021.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 25. maí 2021, greinargerð Lotu vegna burðarvirkis ódagsett ásamt því að lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2021. Stækkun/minnkun frá eldra erindi: xx ferm. Eftir stækkun/minnkun, A-rými: 3.501 ferm., 10.479,8 rúmm. B-rými: 375,5 ferm. Gjald kr. 12.100.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. september 2021 samþykkt.