Leikskóli
Eggertsgata 35
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 552
28. ágúst, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar dags. 1. júní 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, austurhluta háskólalóðar, vegna lóðarinnar nr. 35 við Eggertsgötu. Í breytingunni felst að skilgreina byggingarreit svo koma megi fyrir að hámarki tveimur færanlegum vinnuhúsum á lóð, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 1. júní 2015. Tillagan var auglýst frá 30. júní til og með 12. ágúst 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar