Sólstofa og gler á svalir
Haukdælabraut 60
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 804
15. janúar, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja sólstofu á hluta suðursvala einbýlishúss á lóð nr. 60 við Haukdælabraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2021.
Stækkun: x.xx ferm, x.xx rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2021.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214806 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101677