breyting á deiliskipulagi
Mýrargata 21-23 (Bræðraborgarstígur 2 og Bakkastígur 8)
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 787
4. september, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Einars Ólafssonar, dags. 18. júlí 2019, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits, reits 1.131, vegna lóðarinnar nr. 21-23 við Mýrargötu. Í breytingunni felst að minnka umfang og hæðir kirkjunnar ásamt því að kirkjuturnar eru lækkaðir. Turnunum fækkar úr 5 í 2, hámarkshæð hærri turns minnkar úr 22 metrum niður í 18 metra og minni turns úr 17. metrum niður í 15 metra og umfang kirkjunnar minnkar, samkvæmt deiliskipulags-, skuggavarps- og skýringaruppdr. Arkiteo ehf. dags. 18. maí 2020. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2020 til og með 31. ágúst 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Íbúaráð Vesturbæjar dags. 31. ágúst 2020, íbúasamtök Vesturbæjar dags. 31. ágúst 2020, Rússneska Rétttrúnaðarkirkjan á Íslandi dags. 31. ágúst 2020 og Guðmundur Pálsson dags. 1. september 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.