breyting á deiliskipulagi
Bleikargróf 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 513
24. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 17. október 2014 var lögð fram fyrirspurn SAV ehf. f.h. Sýrfells ehf., dags. 14. október 2014 um breytingu á deiliskipulagi Blesugrófar vegna lóðar nr. 6 við Bleikargróf. Áfram verði gert ráð fyrir íbúðarhúsi á tveimur hæðum en með 6 litlum íbúðum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað í samræmi við fyrirspurnina og í samráði við skipulagsfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 219191 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101162