Hækkun húss, svalir, tröppur o.fl.
Grenimelur 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 798
20. nóvember, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. nóvember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að hækka og endurgera þakhæð, byggja kvisti, nýjar svalir á suðurhlið 1. og 2. hæðar og breyta innra skipulagi á 1. og 2. hæð í húsi á lóð nr. 8 við Grenimel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. júlí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 2. nóvember 2020. Stækkun: 109,5 ferm., 188,1 rúmm. Eftir stækkun: 447,2 ferm., 1.146,8 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að
Grenimel 5, 6, 7, 9 og 10 og Reynimel 25, 27 og 29.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106338 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011480