Hækkun húss, svalir, tröppur o.fl.
Grenimelur 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. nóvember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að hækka og endurgera þakhæð, byggja kvisti, nýjar svalir á suðurhlið 1. og 2. hæðar og breyta innra skipulagi á 1. og 2. hæð í húsi á lóð nr. 8 við Grenimel. Erindi var grenndarkynnt frá 2. desember 2020 til og með 31. desember 2020. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. júlí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 2. nóvember 2020. Stækkun: 109,5 ferm., 188,1 rúmm. Eftir stækkun: 447,2 ferm., 1.146,8 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106338 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011480