tillaga
Hverfisskipulag, Breiðholt 6.3 Efra Breiðholt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 835
3. september, 2021
Annað
‹ 478737
478738
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að hverfisskipulagi Breiðholts, hverfi 6.3 Efra Breiðholt, dags. 30. apríl 2021, ásamt almennri greinargerð og stefnu, dags. 30. apríl 2021, og skipulagsskilmálum, dags. 30. apríl 2021. Einnig er lögð fram verklýsing fyrir hverfisskipulag dags. 25. mars 2015, lagf. 4. maí 2015, skýrsla um íbúaþátttöku og samráð dags. 7. desember 2020, athugasemdir, ábendingar og spurningar sem bárust á kynningartíma vinnslutillagna hverfisskipulags fyrir Breiðholt á tímabilinu 16. júlí til 18. september 2020, samantekt á úrvinnslu athugasemda og ábendinga frá íbúum og hagsmunaaðilum dags. 26. maí 2021 og byggðakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur fyrir borgarhluta 6, Breiðholt, skýrsla 216 frá árinu 2021. Tillagan var auglýst frá 29. júní 2021 til og með 31. ágúst 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingar: Heiðdís Schell Traustadóttir dags. 26. júní 2021, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti dags. 2. júlí 2021, Björn Ólafsson mótt. 12. júlí 2021, ótilgreindur aðili, vegna umferðar við Austurberg, dags. 12. júlí 2021, Bókun fulltrúa í íbúaráði Breiðholts dags. 20. ágúst 2021, Vegagerðin dags. 24. ágúst 2021 og svarbréf frá skipulagsdeild Kópavogs 26. ágúst 2021 ásamt umsögn umhverfissviðs Kópavogsbæjar 13. ágúst 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. september 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umsagnar hverfisskipulags.