þak hækkað - breyta svölum
Leifsgata 28
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 849
10. desember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta kvistum þannig að suðurhluti þaks er hækkaður og svalir stækkaðar auk þess sem sótt er um áður gerðar breytingar á íbúð 0401 á húsi á lóð nr. 28 við Leifsgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 10. nóvember 2021 til og með 8. desember 2021. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 2 febrúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. mars 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. mars 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. maí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2021. Stækkun: 7,3 ferm., 68,7 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102617 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018381