Viðbygging við íbúðarhús og niðurríf bílskúrs
Sjafnargata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 747
18. október, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. október 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu með flötu þaki, með gróðurþekju, sem verður tengd við íbúð í kjallara og 1. hæð á norðvesturhlið húss og rífa niður bílskúr á lóð nr. 3 við Sjafnargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. október 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2019. Bréf hönnuðar dags. 3. október 2019 fylgir erindi. Stækkun viðbyggingar eru: 57,1 ferm., 205,6 rúmm. Niðurrif bílskúrs er: 18,2 ferm., 45,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sjafnargötu 1, 2, 4, 5 og 6 og Freyjugötu 28, 30 og 32.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.