Viðbygging við íbúðarhús og niðurríf bílskúrs
Sjafnargata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 498
4. júlí, 2014
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. maí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu með þaksvölum og verönd, gerð er grein fyrir áður gerðum garðskála og mhl. 70 er breytt í mhl. 02 við einbýlishús á lóð nr. 3 við Sjafnargötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. maí 2014. Erindi var grenndarkynnt frá 28. maí 2014 til og með 25. júní 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Tinna Ólafsdóttir dags. 19. júní 2014, Ragnhildur Zöega og Ásgeir Ásgeirsson dags. 25. júní 2014 og Ragna Kristjánsdóttir dags. 25. júní 2014. Einnig er lagður fram tölvupóstur Óskars Jónssonar þar sem ekki er gerð athugasemd við breytingar.
Bréf frá hönnuði dags. 29.apríl 2014 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 8. maí 2014. Stækkun húss er 75,92 ferm. 205 rúmm. Garðskáli stærð : 15,7 ferm., 46,3 rúmm. Samtals stærðir: 91,62 ferm. 251,3 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.