Viðbygging við íbúðarhús og niðurríf bílskúrs
Sjafnargata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 680
11. maí, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. apríl 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. apríl 2018 þar sem sótt er um leyfi til að reisa viðbyggingu norðan megin þannig að útbúin er vinnustofa sem verður tengd kjallara hússins á lóð nr. 3 við Sjafnargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Bréf frá hönnuði dags. 19. mars 2018 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 19. mars 2018 fylgja erindinu. Stærð viðbyggingar: 54,5 ferm., 179,7 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Sjafnargötu 1,2,4,5,6 og Freyjugötu 28,30 og 32.