(fsp) stækkun á bílskúr og fækkun á gluggum
Hrísateigur 19
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 889
20. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 voru lagðar fram fyrirspurnir Nellyjar Alexandersdóttur Voskanian dags. 6. september 2022 um að stækka bílskúr á lóð nr. 19 við Hrísateig og fækka gluggum, úr fjórum í þrjá, og hurðum, úr tveimur í eina, samkvæmt tillögum/skissum ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2022.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2022 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104515 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020714