bréf íbúaráðs Laugardals vegna erindi íbúa um skipulagsmál og umgengni
Vogabyggð svæði 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 836
10. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2017 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, mótt. 24. ágúst 2017, um framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar á svæði 2 í Vogabyggð. Verkefnið felst í endurgerð núverandi gatna og gerð nýrra gatna í Vogabyggð svæði 2 eins og það er skilgreint í greinargerð deiliskipulagsins. Um er að ræða framkvæmdir við gerð gatna, gangstétta og lagna á svæðinu. Verkið felst í megindráttum í gerð nýrra gatna, fullnaðarfrágangi stofn- og dreifilagna í götustæði og lokafrágang á yfirborði. Verkefnið er áfangaskipt eins og fram kemur á meðfylgjandi teikningu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 1. september 2017. Lagt fram að nýju ásamt tölvupósti skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 1. september 2021 þar sem óskað er eftir framlengingu á framkvæmdaleyfi.
Svar

Samþykkt að framlengja framkvæmdaleyfi til 31. desember 2024.