bréf íbúaráðs Laugardals vegna erindi íbúa um skipulagsmál og umgengni
Vogabyggð svæði 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 787
4. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Þorsteins Inga Garðarssonar dags. 29. maí 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæði 1 vegna lóðar nr. 1.6. Í breytingunni felst m.a. að heimila aukið byggingarmagn og reisa íbúðir í þremur húshlutum ofan á bílgeymslu, fækka bílastæðum í götu, gera þemagarð á borgarlandi austast á svæðinu ásamt því að breyta lögun lóðar og götu, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Jvantspijker og Teiknistofunnar Traðar dags. 16. júní 2020. Einnig eru lagðir fram skilmálar fyrir húsbyggingar og mannvirki á lóð dags. 26. janúar 2018 br. 16. júní 2020, minnisblað Eflu dags. 12. mars 2019 um hljóðmælingar og umboð Gelgjutanga ehf. dags. 25. maí 2020. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2020 til og með 31. ágúst 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.