bréf íbúaráðs Laugardals vegna erindi íbúa um skipulagsmál og umgengni
Vogabyggð svæði 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 776
5. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa var lögð fram umsókn Veitna ohf. dags. 14. apríl 2020 um framkvæmdaleyfi vegna byggingu nýrrar skólpdælustöðvar í Vogabyggð svæði 5. Einnig er lagt fram teikningasett dags. í apríl 2020. Einnig er lögð fram umsögn Hafrannsóknarstofnunar dags. 28. maí 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júní 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. júní 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.