bréf íbúaráðs Laugardals vegna erindi íbúa um skipulagsmál og umgengni
Vogabyggð svæði 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 766
20. mars, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæði I vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi við Kleppsmýrarveg. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð, samkvæmt uppdr. Trípólí arkitekta dags. 7. janúar 2020. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna sf. dags. 17. janúar 2020. Tillagan var auglýst frá 30. janúar 2020 til og með 12. mars 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar