bréf íbúaráðs Laugardals vegna erindi íbúa um skipulagsmál og umgengni
Vogabyggð svæði 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 739
16. ágúst, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram umsókn Sigríðar Magnúsdóttur dags. 15. ágúst 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar. Breytingin felst í því að stækka lóð skólpdælustöðvar um 150m2 (úr 900m2 í 1050m2) og minnka um leið athafnarsvæði smábáta úr 25.555m2 í 25.415m2 ásamt því að stækka mannvirki skólpdælustöðvarinnar að flatarmáli (úr 300m2 í 500m2) og rúmmáli, hæð þess getur orðið 9 metra hátt frá jörðu. Ásamt því að skilgreina nýja kvöð utan lóðar skólpdælustöðvar um graftrarétt, landmótun og göngustíg við lóð skólpdælustöðvar samkvæmt uppdrætti jvantspijker og Teiknistofunnar Traðar dags. 15. ágúst 2019.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018