breyting á deiliskipulagi
Sæmundargata 15-19
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 870
31. maí, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Pálmars Kristmundssonar dags. 17. maí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, Vísindagarða, vegna lóðarinnar nr. 15-19 við Sæmundargöt. Í breytingunni felst að byggingarreitur þakhæðar er breytt lítillega til að koma fyrir upphækkuðu lyftu- og stigahúsi á vesturhlið byggingarinnar við Sæmundargötu, samkvæmt uppdr. PK Arkitekta ehf. dags. 25. maí 2022.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Sæmundargötu 14, 16, 18, 20 og 21, þegar uppfærður uppdráttur berst.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.