Breytingar - BN058043
Víðimelur 29
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 796
6. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og gera fimm sjálfstæðar íbúðir í húsinu, fjarlægja reykháf sem snýr að götuhlið, stækka svalir, síkka glugga í kjallara og setja nýja kvisti og þakglugga á hús á lóð nr. 29 við Víðimel. Erindi var grenndarkynnt frá 6. október 2020 til og með 3. nóvember 2020. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður fram tölvupóstur Guðnýjar Jónasdóttur dags. 6. október 2020 og Sigrúnar Helgadóttur dags. 30. október 2020 þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á útliti hússins, bréf Minjastofnunar dags. 2. júlí 2020 og skýrsla um íbúðaskoðun dags. 16. september 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106322 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014552