Svalir
Ægisíða 119
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 836
10. september, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. júlí 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að setja svalir á austurgafl íbúðar 0201 og svalir með hringstiga niður í garð á vesturgafl íbúðar 0101 í íbúðarhúsi á lóð nr. 119 við Ægisíðu. Erindi var grenndarkynnt frá 5. ágúst 2021 til og með 2. september 2021. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir hæðablað dagsett 30. janúar 1963 og samþykki lóðarhafa áritað á uppdrátt nr. A-101 dags. 14. júní 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106175 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017009