Endurnýjun á erindi sem fallið er úr gildi, breytt notkun í gistiheimili og setja svalir á norðurhlið
Njarðargata 45
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 888
13. október, 2022
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. september 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta skráðri notkun úr fjölbýli í gistiheimili í flokki II, tegund (?) fyrir 16 gesti, setja svalir á 2. og 3. hæð norðurhliðar á húsi á lóð nr. 45 við Njarðargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. október 2022.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. október 2022.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102301 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023481