Fjölbýlishús
Sólvallagata 79
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 798
20. nóvember, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. nóvember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja fjögur tveggja til fimm hæða fjölbýlishús með 83 íbúðum, atvinnurýmum á götuhlið v/Hringbraut og bílakjallara fyrir 82 bíla, steinsteypt, einangruð að utan og með loftræstri klæðningu á Steindórsreit á lóð nr. 79 við Sólvallagötu.
Erindi fylgir brunahönnun frá Örugg, verkfræðistofu dags. 26. október 2020 og greinargerð um hljóðvist frá Eflu dags. 17. apríl 2020. Stærð, A-rými: 9.184,2 ferm., 29.051,2 rúmm. B-rými: 3.747 ferm., xx rúmm. Samtals: 12.931,2 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100717 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019466