breyting á deiliskipulagi
Hlemmur, reitur 1.240, Umferðarskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hlemmur og nágrenni, eða deiliskipulag stgr. 1.240, Hlemmur og nágrenni og Hlemmur,umferðarskipulag, sem samþykkt var 19. mars 2020 í borgarráði og tók gildi við birtingu auglýsingar í B deild Stjórnartíðinda þann 7. apríl 2020. Breytingin felur í sér að norðvestur horn skipulagssvæðisins er teygt í norður meðfram Snorrabraut að sjávarmáli. Vestari ytri mörk deiliskipulagsins fylgja áfram lóðarmörkum lóða sem liggja vestan megin við Snorrabraut, nú alla leið framhjá lóð við Skúlagötu nr. 21. Við þetta er borgarland fært sem hluti af deiliskipulagi Hlemms og nágrennis. Austari ytri mörk fylgja lóðamörkum Guðrúnartúns nr. 1. Frá lóðarlínum og norður að sjávarmáli er miðað við að mörk deiliskipulagssvæðisins nái 35 m í hvora átt frá miðlínu Snorrabrautar. Undantekning er gerð vegna sérafnotareits meðfram lóð Skúlagötu nr. 21, sem áfram verður hluti af deiliskipulagi Skúlagötusvæðis.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.