Viðbygging og svalir
Fjölnisvegur 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 836
10. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. ágúst 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. júlí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að sameina tvær íbúðir sem eru 0201 og 0301 í eina og byggja einnar hæðar viðbyggingu með svölum ofaná við suðausturhlið húss á lóð nr. 6 við Fjölnisveg. Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 25. ágúst 2021. Jafnframt eru lagðar fram athugasemdir Hjörleifs Stefánssonar dags. 2. september 2021 við umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur frá 25. ágúst 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. september 2021.
Samþykki eigenda dags. 16. júlí 2021 fylgir. Bréf Hönnuðar dags. 24. júní 2021 fylgir og aftur 16. júlí 2021. Stækkun viðbyggingar eru: 19,0 ferm., 54,0 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. september 2021 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102671 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009924