Viðbygging og svalir
Fjölnisvegur 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 839
1. október, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. september 2021 þar sem sótt er um leyfi til að sameina tvær íbúðir sem eru 0201 og 0301 í eina og byggja einnar hæðar viðbyggingu með svölum ofaná við suðausturhlið húss á lóð nr. 6 við Fjölnisveg.
Erindi fylgir samþykki eigenda dags. 16. júlí 2021, bréf hönnuðar dags. 24. júní 2021 og dags. 16. júlí 2021. Stækkun viðbyggingar eru: 19,0 ferm., 54,0 rúmm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. september 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. september 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 13. september 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fjölnisvegi 4 og 8 og Bergstaðarstræti 69 og 71.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102671 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009924