breyting á deiliskipulagi
Grandavegur 47
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 473
3. janúar, 2014
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. október 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að innrétta íbúð í rými 0104 sem nýtt hefur verið sem aðstaða fyrir sjúkraþjálfara á fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 47 við Grandaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2013.
Gjald kr. 9.000
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2013.