Svalir - 2.hæð
Langagerði 82
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN043152, sem felst í því að svalir eru settar á suðurhlið og innra skipulagi breytt á annarri hæð í einbýlishúsinu á lóð nr. 82 við Langagerði. Erindi var grenndarkynnt frá 21. júlí 2020 til og með 18. ágúst 2020. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. júlí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2020. Gjöld kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108569 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014985