breyting á deiliskipulagi
Grandagarður 16
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 874
23. júní, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. maí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að gera glugga, nýja inngangshurð og breyta innra skipulagi þannig að hluti af rýmum 0104 og 0105 eru sameinuð í eitt rými og innréttuð vinnuaðstaða á upphækkuðu gólfi, starfsmannaaðstaða og verkstæði fyrir starfsmenn nýrrar hafnarvogar sem komið verður fyrir í gryfju við suðvesturhlið húss á lóð nr. 16 við Grandagarð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2022.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið en breyta þarf deiliskipulagi, sbr. umsögn skiplagsfulltrúa dags. 23. júní 2022.