breyting á deiliskipulagi
Grandagarður 16
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 879
11. ágúst, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júlí 2022 var lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags. 4. júlí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar vegna lóðarinnar nr. 16 við Grandagarð. Í breytingunni felst að reitur 2 á lóð er færður samsíða byggingu frá norðausturhorni lóðar um ca 20 m til suðvesturs, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 30. júní 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.