Svalir á bakhlið hússins
Stangarholt 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 779
26. júní, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. júní 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir svölum á íbúðir 0101 og 0201 á suðurhlið og koma fyrir hurðum út á þær í húsinu á lóð nr. 10 við Stangarholt. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Umsögn skipulags frá 16. mars 2018 fylgir þar sem Jákvætt er að grenndarkynna erindi ef það berst. Samþykki meðeigenda að Stangarholti 10-12 dags. 1 júní 2020 fylgir. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Stangarholti 8 og 12 og Stórholti 21 og 23.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103276 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020239