122 - Viðbygging ofan á dæluhús
Úlfarsbraut 122-124
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 833
20. ágúst, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Hebu Hertervig, dags. 15. júní 2021, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags útivistarsvæðis í Úlfarsárdal vegna lóðarinnar nr. 122-124 við Úlfarsbraut. Í breytingunni felst að settur er sér hæðarkóti fyrir stigahús vatnsrennibrautar, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 7. júní 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. júlí 2021 til og með 16. ágúst 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.