breyting á deiliskipulagi
Rofabær 32, Árbæjarkirkja
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 811
5. mars, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. febrúar 2021 var lögð fram umsókn Sigríðar S. Sigþórsdóttur dags. 19. febrúar 2021 varðandi breytingu á hverfisskipulagi fyrir Árbæ, skilmálaeining 7.2.9, vegna lóðarinnar nr. 32 við Rofabæ. Í breytingunni felst að aðalbyggingarreitur fyrir nýbyggingu er stækkaður til austurs, samkvæmt uppdr. BASALT arkitekta ehf. dags. 19. febrúar 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Landnúmer: 111255 → skrá.is
Hnitnúmer: 10005641