(fsp) breyting á deiliskipulagi
Nýr Landspítali við Hringbraut
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 787
4. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kanon arkitekta ehf. , dags. 23. júní 2020, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut. Í breytingunni felst breikkun á Burknagötu vegna tilkomu borgarlínu og færslu og breytingar á byggingarreitum sunnan götunnar sem nemur breikkuninni. Í tengslum við þessa færslu verða einnig afleiddar breytingar á staðsetningu byggingarreita randbyggðar, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Spital ehf., dags. 23. júní 2020. Einnig er lagt fram bréf Gunnars Svavarssonar f.h. NLSH ohf.dags. 19. júní 2020. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2020 til og með 31. ágúst 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.