(fsp) breyting á deiliskipulagi
Nýr Landspítali við Hringbraut
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 779
26. júní, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2020 var lögð fram umsókn Helgu Bragadóttur arkitekts f.h. Nýs Landspítala ohf. dags. 3. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit austan á Meðferðarkjarna að aðaltorgi/Sóleyjartorgi um 150 m2 fyrir glerbyggingu og koma þar fyrir stigahúsi með inngangi frá torginu, samkvæmt uppdr. Spital dags. 31. janúar 2020, breytt 19. júní 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.