breyting á deiliskipulagi
Borgartúnsreitur vestur 1.216
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð er fram tillaga á breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vestur, afm. af Borgartúni, Snorrabraut, Sæbraut og Katrínartúni, samþykkt þann 7. apríl 2011. Þessi breyting felst í breyttum skipulagmörkum við Snorrabraut og Borgartúni og er lögð fram vegna breytinga á aðliggjandi deiliskipulagi fyrir Hlemm og nágrenni. Breyta þarf gild. deiliskipulagi svo ekki verði skörun á skipulagsmörkum á milli deiliskipulagssvæða. Breytingin felur í sér að deiliskipulagsmörk eru færð að austurhlið lóðamarka Sætúns nr. 1. Þá eru deiliskipulagsmörk færð að lóðarmörkum lóða við Borgartún, það eru lóðir við Borgartún nr. 1, 3 og 7 ásamt suðurhlið lóðar við Sætún nr. 1. Breytingin nær aðeins til götusvæða og borgarlands. Breyting á deiliskipulagi Hlemms og nágrennis verður auglýst samhliða þessari tillögu.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.