Breyting á skráningu á 2. hæð svo að í stað íbúðar/vinnustofu með einu rýmisnúmeri komi 2 íbúðir með 2 rýmisnúmerum.
Tryggvagata 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 577
11. mars, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Michaels Blikdals Erichsen, mótt. 27. október 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Naustareits vegna lóðarinnar nr. 16 við Tryggvagötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli, breyta þaki þannig að koma megi fyrir þaksvölum sem tengja má við stigagang og breyting á kvistum. Einnig verður lóðin skilgreind sem atvinnu- og íbúðalóð, samkvæmt uppdr. Urban arkitekta ehf., dags. 24. október 2015. Einnig er lagt fram samþykki eigenda, mótt. 3. desember 2015. Tillagan var auglýst frá 27. janúar til og með 9. mars 2016. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar