Breyting á skráningu á 2. hæð svo að í stað íbúðar/vinnustofu með einu rýmisnúmeri komi 2 íbúðir með 2 rýmisnúmerum.
Tryggvagata 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta skráningu á 2. hæð þannig að í stað íbúðar/vinnustofu með einu rýmisnúmeri verði tvær sjálfstæðar íbúðir í húsi á lóð nr. 16 við Tryggvagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. janúar 2021.
Erindi fylgir afrit af samþykktum teikningum og samþykki meðeigenda dagsett 18. nóvember 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. janúar 2021 samþykkt.