framkvæmdaleyfi
Bústaðavegur og Háaleitisbraut
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 877
14. júlí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags.12. júlí 2022 um framkvæmdaleyfi fyrir endurgerð á núverandi gatnamótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar ásamt aðlögun á aðliggjandi götum og gangstéttum. Endurnýjun og fullnaðarfrágangi á nýjum hitaveitulögnum sem tengjast núverandi kerfi. Endurnýjun og breyting á umferðarljósum og gatnalýsingu ásamt umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum og breytingum norðar á Háaleitisbraut, þrenging götu til norðurs, koddar og biðstöðvar strætó. Einnig er lagt fram teikningasett Verkís dags. í júlí 2022. Einnig er lögð fram grunnmynd Verkís dags. 8. júlí 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. júlí 2022 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108278 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122640