Viðbygging
Nýlendugata 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 806
29. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. október 2020 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. dags. 7. október 2020 ásamt bréfi dags. 7. október 2020 um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 14. við Nýlendugötu sem felst í endurbótum og breytingum á þaki og útliti hússins ásamt hækkun á neðri hluta hússins, samkvæmt tillögu THG Arkitekta ehf. dags. 8. janúar 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. janúar 2021.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað í samræmi við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. janúar 2021.