breyting á deiliskipulagi
Austurstræti 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 792
9. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Arktíka ehf. dags. 13. júlí 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðar nr. 4 við Austurstræti. Í breytingunni felst að afmarkaður er nýr byggingarreitur á 2. hæð yfir núverandi portbyggingu, ásamt því að byggingarmagn á lóð eykst, samkvæmt uppdr. Arktíka ehf. dags. 10. júlí 2020. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 30. júní 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 8. september 2020 til og með 6. október 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100845 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007451