Breytingar 1. og 2. hæð
Brautarholt 6
Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 880
18. ágúst, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. júní 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti, innrétta 6 íbúðir á 2. hæð, innrétta geymslur í austurhluta 1. hæðar, breyta gluggum á báðum hliðum, gera svalir á götuhlið og gera flatt þak á bakhús og gera þar svalir og aðkomu fyrir íbúðir á 2. hæð húss á lóð nr. 6 við Brautarholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. ágúst 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. ágúst 2022 samþykkt.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist lagfærðir uppdrættir, en sýna þarf breytingu á lóðamörkum í samræmi við umsögn.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103022 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007691