Breytingar 1. og 2. hæð
Brautarholt 6
Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 894
24. nóvember, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. nóvember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti, innrétta 6 íbúðir á 2. hæð, innrétta geymslur í austurhluta 1. hæðar, breyta gluggum á báðum hliðum, gera svalir á götuhlið og gera flatt þak á bakhús og gera þar svalir og aðkomu fyrir íbúðir á 2. hæð húss á lóð nr. 6 við Brautarholt.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 4a, 7 og 8 og Skipholti 5 og 7.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103022 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007691