ósk um umsögn vegna endurnýjunar á starfsleyfi
Malarhöfði 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. nóvember 2020 var lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 12. nóvember 2020 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um hvort starfsemi Steypustöðvarinnar að Malarhöfða 10 sé í samræmi við skipulag og hvort breytingar á skipulagi geti komið í veg fyrir endurnýjun á starfsleyfi í 12 ár. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. desember 2020. Jafnframt er lagt fram erindi heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 23. desember 2020 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa þar sem skipulagið kemur með tillögu að lengd á starfsleyfi í árum sem Heilbrigðiseftirlitið getur gefið út starfsleyfi fyrir starfsemina að Malarhöfða 10. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2021 samþykkt.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110553 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022742