(fsp) reitur 12B - breyting á deiliskipulagi
Elliðaárvogur/Ártúnshöfði svæði 1
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 835
3. september, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa að deiliskipulagi fyrir Elliðaárvog/Ártúnshöfða, svæði 2. - Sævarhöfði á Ártúnshöfða. Svæðið er um það bil 18 ha að stærð. Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu allt að 1917 íbúða, safnskóla og skóla, verslunar- og þjónustusvæði, almenningsrýmum, borgarlínu og borgarlínustöð. Samhliða skipulagsgerðinni er unnið að vistvottun skipulagsins samkvæmt forsendum vistvottunarkerfisins Breeam Communities.
Tillagan er lögð fram í samræmi við eftirfarandi gögn ráðgjafa frá Arkís arkitektum:
Almennri greinargerð fyrir svæði 2 (og svæði 1) dags. 4. júní 2021
Greinargerð og skilmálar fyrir byggingar og lóðir fyrir svæði 2, dags. 4. júní 2021
Deiliskipulags- og skýringaruppdrættir dags. 4. júní 2021
Einnig er lögð fram Hönnunarhandbók fyrir opin svæði, inngarða og almenningsrými dags. 4. júní 2021, unnin af Landslagi, samgöngumat Verkís dags. júní 2021, Húsakönnun fyrir Ártúnshöfða svæði 1-4 dags. apríl 2021, hljóðvistarskýrsla Verkís dags. maí 2021, umhverfisskýrsla Verkís dags. maí 2021 og mengunarrannsókn Verkís dags. maí 2020. Tillagan var auglýst frá 7. júlí 2021 til og með 31. ágúst 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur dags. 18. ágúst 2021, Stefán Auðólfsson f.h. Tak-Malbik ehf. dags. 31. ágúst 2021, Samtök um bíllausan lífstíl dags. 31. ágúst 2021, Árni Davíðsson dags. 31. ágúst 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. september 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.